HaukZi#21

Kíkiði á kallinn;)

06.09.2007 09:51:11 / haukzi

það er bara svoleiðis

halló Haukur heiti ég. en þið sem eruð alveg í ruglinu þá bara heyrumst við ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 12:22:03 / haukzi

17.Júní Helgi

Góðann og blessaðan daginn:D langt síðan síðast:) en já 17.Júní helgin var góð sko:D þetta byrjaði allt saman á föstudeginum semsagt 15 júní og þá fór maður og krúsaði með Aroni og þar fékk maður sér nokkra öllara ó Póló;) og orri kallinn fékk minn lánaðan. og svo var ég og Aron bara á krúsinu og Steffy var með. og svo sóttum við Eriku og við fórum niður í Sjallann að kaupa okkur miða á Desyn Masiello. og fór ég aftur aðeins með Aroni;) og við krúsuðum eitthvað og svo þegar Hjalti hringdi og þá var hann að leggja af stað í sjallann og eg auðvitað mætti niður eftir og við fórum svo inní Sjalla og Hjalti byrjaði á því að fara á klóstið. og svo fórum við beint á barinn;)og hann splæsti í einn stórann hehe og svo fór maður aðeins út og sá Brodda og hann var að fara að keyra Elsie útá Hrafnagil og ég fór barasta með og svo fórum við aftur í Sjallann og djömmuðum þar til eitthvað 4 og svo þegar þetta var búið þá kom Orri og sótti mig í sjallann og við fórum síðan fyrir utan Kaffi Ak. og sóttum pabba og haldiði ekki að gamli kallinn komi með 2 17 ára skvísur að sunnan í bílinn;) haha það var gaman að því en við keyrðum bara gamla kallinn heim og svo fórum við bara og keyrðum aðeins með stelpurnar hana Þórunni og man ekki hvað vinkonan heitir:S uppá Hamra og við vorum þar og svo sprakk dekkið á bílnum og maður byrjar að ná í tjakk og dekkið. en það var nú ekki létt sko:S nefnilega að Bassaboxið er oná varadekkinu og maður þurfti að hreyfa þettað allt saman til að komast að þessu:) en það tókst og svo er maður að losa boltana og það var eitt kvikyndi sem að lykillinn náði ekki yfir þannig að við þurftum að hringja í stebba Súkku og hann kom með annan lykil sem passaði og svo var varadekkið sett undir og lagt af stað. En versta var að Þórunn og vinkonan voru eftir:S hehe en við fórum bara í bæinn og keyrðum aðeins og svo fórum við og keyptum okkur eitthvað að borða og svo að sofa:D

Laugardagurinn......

já laugardagurinn byrjaði þannig að ég vaknaði um 5-6 og þar vakti Halli Gulli frændi mig og bað mig að hjálpa Orra að bóna báða Jeppana og Bjölluna;) og ég fór að vakna og klæddi mig sótti bjölluna þreif hana þurkaði og fór svo á bjölluni í mat til pabba. og svo eftir matinn þá fór ég með bjölluna uppá KT að Bóna og ryksuga og þurka að innan;) Svo kom Orri á Rauðu Tacomuni og byrjaði að þrífa hana átti í smá vandræðum með allar dauðu flugurnar frá Mývatni hahahaha. og svo fór ég með Bjölluna og sótti Hvítu Tacomuna og þreif hana að innan og utan;) og svo kom Halli og við hjálpuðum Orra með Rauðu Tacomuna og svo fór ég og halli með Bjölluna og Hvíta uppí Boga fyrir sýninguna og svo fórum við aftur niðurí KT að klára að hjálpa Orra með Rauðu Tacomuna og svo kláruðum við hana og svo var farið með hana í bogann um 2 leitið. þá fór maður strax heim og fór í sturtu og í djammfötin og svo beint út og opnaði sér bjór:) en svo reyndi maður að fara í sjallann en maður komst ekki þar inn:S bömmer hahaha en maður fór bara í staðinn á Capone með Gunna á DJ.óla geir. og þar sá maður undirfatasýningu og blautbolkeppni hehe;) en svo fór maður bara um hálf 5 á rúntinn með elfu kristlaugu og gunna og ég og gunni gerðum nokkur prakkarastrik sem ekki verða sögð hér hahahah:D

Sunnudagurinn......

sunnudagurinn var þannig að maður fór og þreif bílinn og eitthvað settu aðrar felgur undir af þvi að maður var á varadekki:S sem er viðbjóður. en já svo fór maður bara á bílasýninguna og svo um kvöldið niður í bæ og labbaði þar um og hitti fólk og svo fór maður og keyrði aðeins með kristó og Hildu og svo fór maður bara heim og sofnaði:D

en þetta var mín 17.Júní helgi og þakka fyrir mig. en svo er bara ættarmót næstu helgi hjá manni og það verður eitthvað stuð:D hehe


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 10:05:58 / haukzi

ekkert skemmtilegra en Ömmudjamm;)

Allt að gerast hjá manni;) sko það styttist óðum í að utandeildinn í knattspyrnuu byrjar og ég er að keppa í því þannig að það þurfa allir að koma og horfa á okkur keppa á hverjum fimmtudegi í sumar;) hehe en já það er mikið búið að gerast um helgina:) maður byrjaði á því að taka helginni rólega og maður fór í bíó á föstudeginum á Pirets... og hún er algjör snild sko mæli með  að allir kíki á hana;) en ja svo á laugardaginn þá var maður líka rólegur man ekki alveg hvað ég gerði þá:/ en það var eitthvað vona ég hahaha:D en já svo þessi umdeildi sunnudagur hann var mergjaður sko maður vaknaði og fór bara í tölvuna og svo í afmæli til litla frænda míns og svo hringdi Gunni kærasti systur minnar í mig og bað mig að koma niður á smábáta bryggju að hjálpa sér að koma trylluni á land vegna þess að eitthvað festist í skrúfuni og ég kom og hjálpaði og svo þurfti maður að fara í vöðlurnar hans og vaða í sjóinn til að ýta bátnum svo hann kæmi rétt uppá land og ég veð útí og neinei maður var ekki búinn að vera útí vatninu í 2 mínútur og þá var maður orðin rennandi blautur:evil: en þar sem maður var orðin rennandi blautur þá var maður bara þarna útí sjónum og manni var ískaltog svo þegar maður fór uppá land aftur og fór úr vöðlunum þá hellti ég sjónum úr vöðlunum og það var nógur sjór í vöðlunum til að búa til læk:S en svo fór maður úr buxunum sínum bara og settist undir stýri á brókinni og keyrði heim og skellti sér í sturtu og fór aftur í afmælið og svo fór maður á fótboltaæfingu klukkan 19:00 og svo fór maður heim af æfingu um 20:30 og fór í sturtu og klæddi sig í djammfötin og svo fór maður aðeins í heimsókn til elfu og gunna og svo keyrði ég gunna og begga niður á Kaffi akureyri og elfa fór svo heim í djamm fötin og svo fórum við til ömmu og þar var allt krúwið mamma var þarna og anna lilja halli gulli og friðrik ómar sistkyni mömmu og svo var birna ármann og einhver vinkona ömmu og þar vorum við og drukkum og skemmtum okkur í smá tíma töluðum mikið en hlógum ennþá meira:haha: svo  þegar klukkan var orðin hálf eitt þá lögðum við af stað á Vélsmiðjuna og þar byrjaði ég og amma á að fara á barinn og það var náttúrulega í boði ömmu gömlu;) haha en já svo settust allir við borðið sem við áttum frátekið þarna og drukkum og hlógum meir svo þegar fyrsta lagið með Eurobandinu byrjaði stóðu allir upp og dönsuðu af sér fæturnar ég held ég hafi farið 2 eða 3 af dansgólfinu og svo for ég amma og anna frænka einu sinni uppá sviðið að dansa heheh þetta var geðveikt sko:) og maður dansaði og söng allan tímann og svo þegar þau hættu að spila þá fórum við baksviðs aðeins og bara töluðum saman eitthvað og  vorum i myndartökum og skemmtilegheit en ég hef ekki skemmt mér svona mikið í marga mánuði þetta var MERGJAÐ ég er að segja þér það;) en já atla að segja þetta gott þangað til næst veriði bless;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 15:55:51 / haukzi

blessaður dagurinn!!!

Daginn góðir hálsar!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 11:41:17 / haukzi

Hreyfing

jæja gott fólk þá er maður farinn að hreyfa sig loksins almennilega:D já þetta byrjaði náttúrulega með því að það eru náttúrulega æfingar einu sinni í viku hjá fótboltaliðinu mínu www.blog.central.is/greifarnirfc;) en já svo fór ég og BRoddi félagi og náttúrulega skuggi hundurinn minn út að hlaupa í gær;) og það var býsna gaman fórum eitthvað um 20 mínútur í 19:00 og byrjuðum strax að hlaupa og það var gaman;) maður sá allavega að skuggi skemmti sér konunglega:D en já svo hittum við pabba hans Brodda;) The great Pétur:) en já hann er að hugsa um einhverjar vandræðastlepur frá laugum:D og þær buðu okkur kyntröllunum að vera með auðvitað;) hehehe og við þáðum það og vorum í fótbolta ég veit ekki hvað lengi hehe þetta var algjör snilld:haha: en já náttúrulega skuggi var með og það var geðveikt fyndið haha mitt lið skaut að marki og markmaðurinn varði en boltinn lennti á jörðina aftur og þá kom skuggi hlaupandi á boltann og skoraði hahahaha það var algjör snilld enda voru allir skellihlæjandi þarna hahahaha:haha: en já hann skuggi var duglegur. þegar boltinn var að fara eitthvað langt í burtu útaf vellinum þá hljóp skuggi eftir boltanum og stoppaði hann og beið eftir að einhver kæmi og sæki hann:) hörku duglegur hann skuggi minn:D enda á ÉG HANN:) hehehe en já svo er náttúrulega bara verið að fara að keppa í kvöld:D klukkan 21:00 í boganum á móti Narfa:D getið séð allar upplýsingar á www.blog.central.is/greifarnirfc ;) en já svo hvet ég alla til að koma í bogann og hvetja okkur strákanna áfram:D

En Haukur kveður að sinni;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.04.2007 11:24:55 / haukzi

allt í góðu lagi;)

Jæja þá er maður búinn að fá bíllykla:D fékk þá í gær og það var strax farið að prufa þá og þegar ég heyrði bílinn fara í gang þá var ég svo ánægður. maður var komin með bíl aftur:) hehehe en já þetta var meira bras en ég hélt hehe. ég ætlaði eina kvöldstund að fara að rífa sílendran úr. og var búinn að rífa klæðninguna af hurðinni og alltí gúddí hehe en svo atla ég að fara að losa hann og þá sé ég bara fullt af einhverju drasli og ég gafst mjög fljótt upp hahha ekki séns í helvíti að ég hefði getað þetta:) en daginn eftir þá fór ég til afa og spurði hvort hann gæti ekki hjálpað mér. og hann auðvitað bara jújú kallinn minn ég skal gera það. og svo eftir vinnu þá fórum við uppeftir þar sem bíllinn var og við vorum þar ábyggilega í einn og hálfan tvo tíma að rífa þetta úr hehe ég hugsaði bara með mér að ef að ég hefði reynt að rífa þetta úr daginn áður þá hefði ég aldrei náð þessu hehe væri  ábyggilega enn að reyna það:) en já svo þegar ég fékk lyklana i gær fór ég beint uppeftir með bílinn í KT. og ég setti sjálfur sílendran í:D ég var helvíti ánægður þegar að ég sá að þetta allt virkaði það var geðveikt hehe;) en já þánnig að maður getur farið að bruna um götur bæjarins ehehe. en jáhh svo þarf maður víst að borga hraðasekt núna um mánaðarmótin uppá 45 þúsund kall ef ég borga fyrir 13 maí. annars er það 60 þúsund:$ þetta er klikkun:S en allavega þangað til næst ætla ég að fara að bruna um götur bæjarins;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 12:32:44 / haukzi

TÝNT

jæja þá er maður "bíllaus":S já það var nefnilega þannig að ég arnar og kristó fórum saman í sjallann á sunnudaginn á bílnum mínum og kristó var að keyra;) og svo förum við eitthvað bara að djamma þar hehe helvíti gaman í sjallanum samt;) hellingur af fólki8) en já maður dansaði af sér lappirnar og var bara gaman en svo þegar við ætlum að fara að fara og erum komnir í bílinn segir kristó það versta sem ég hef heyrt lengi:S hann sagði "hvar eru lyklarnir af bílnum" ég hélt náttúrulega að hann væri að grínast af því hann var næstum búinn að týna þeim fyrr um kvöldið og ég bara hættu þessu er ekki fyndið. en hann var búinn að týna þeim:| og ég var nú samt ekkert sáttur sko en ég meina hver sem er hefði nú getað týnt þessum lykli:) en ég er að fara að horfa á það að ég þarf að láta Stjána skjóldal koma og opna bílinn og draga hann fyrir mig uppá verkstæði til Halla Gulla og það kostar bara 7000-8000 þúsund og svo þarf ég að rífa sílenderinn á farþegahurðinni og senda það suður og þar verður búið til lykil sem þeir segja að muni vera undir 5000 þúsund kallinum allavega en ég atla að láta gera 2 lykla efað það yrði týnt aftur lyklinum hehe:) en ég er að fara að horfa á það að þetta muni kosta mig eitthvað um 16.000 þúsund kall:S en svona er þettað bara. væri fínt að vera bara komin með orlofspeningana hehehe þá yrði þetta ekkert mál en þangað til næst veriði blessuð;**

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 09:34:27 / haukzi

DJ Páll Óskar!!!!!

Jæja Páll Óskar í Sjallanum á sunnudagskvöldið 8 Apríl og það er 16 ára ball

Allir reyndar að mæta;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 12:21:45 / haukzi

Páskafrí:)

Hvað á maður að gera í Páskafríinu???:/

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 09:51:54 / haukzi

gaman af þessu

Haukur heiti ég en hvað heitir þú:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 12:04:24 / haukzi

Reykjavík:)

Jább kallinn fór suður á bóginn á föstudeginum:) við lögðum af stað klukkan 4 og vorum komin um 8-9 leitið:D fórum beint í hagasel til bróður pabba af þvi að pabbi gamli var 50 ára um helgina og það var party þar;) svo þegar við komum inn í húsið er allt fólkið blindblekað og gaman haaha algjör snilld en við settumst bara niður við matarborðið og fengum okkur að borða;) mat frá Nings:) helvíti gott sko. en já svo bara færðum við okkur i stofuna og þar var allt ballið allir blind blekaðir og læti svo var auðvitað gefið manni bjór og vodka askoti gott hehe já svo fékk pabbi geðveika gjöf hahahaha hann fékk uppblásna rollu:haha: ahahaha algjör snilld og það besta er að hún Jarmar hahaha. en já svo bara seinna um nóttina þegar maður var búinn að hlæja úr sér magann þá fórum ég og elfa systir mín heim til frikka frænda og frikki bauð mér bara bjór og sagði gjörðu svo vel og ég lagst uppí sófa með bjór og horfði á sjónvarpið;) svo morguninn eftir vöknum við og þá kom Margrét Eir söngkona og gaf elfu einhverjar verkjatöflur Elfa var nefnilega veik:S og svo vildi Margrét bara fara að elda mat oní okkur og læti hahaha við bara nei takk erum að fara eins og við vorum að gera þurftum að drífa okkur í kringluna og finna gjöf handa pabba og við fundum 2 bjórglös og svo þurftum við að drífa okkur strax í hafnafjörðinn með glösin og láta merkja þau og svo brunuðum við aftur í kringluna fngum okkur aðeins að borða og svo héldum við áfram að kaupa eitthvað hana pabba og svo þegar þetta var orðið gott þá fórum við með gjafirnar heim til Elsu og geymdum þær þar og svo fórum við og náðum í pabba fórum og fengum okkur að borða ;) og svo kíktum við í kolaportið og svo á einhverja mynda sýningu:D og síðan fórum við í mat heim til Elsu og borðuðum þar og höfðum það gott sátum og töluðum bara saman öll var bara þægilegt:D þarf ekki alltaf að vera einhver læti;) en já þar var drukkið en ekki ég;) ég nennti ekki að drekka þannig að ég var bara að keyra minn eigin bíl:D já svo fórum við með pabba þangað sem hann gisti og kíktum aðeins inn og ar fóru þeir bræður að drekka kaffi og Koníak:D og svo um hálf 2 leitið þá skellti ég mér bara heim og fór að sofa:D og svo morgunin eftir þá vöknum við um 11 leitið og þá fær elfa sér verkjatöflu og svo kom Margrét og bauð bara góðan daginn og spurði hvort við værum ekki svöng hehe og við bara nei erum að fara til bróður pabba að borða og við fórum þangað og fengum okkur smá snarl og svo lögðum við í hann;) og þá var holtavörðuheiðinn lokuð:whut: og ég bara nei en þá var eitthvað fólk sem vissi um aðra leið og við fórum öll í samfloti og vorum 7 og hálfan tíma á leiðinni:S enda sá maður ekki á milli stika alla leiðina:evil: ömurlegt en svo þegar við komum í bæinn þá leigði ég mér myndir og fór heim japlaði á pizzu og horfði á myndirnar:D en ég þakka fyir mig og muna að kvitta;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 21:38:21 / haukzi

Mývatn Geðveikt

Jæja þá er maður komin af Mývatni;) hehe 

Föstudagur

en ferðin var þannig að við lögðum af stað eitthvað um hálf 3 til mývatns og þá fórum við á 2 bílum ég orri og begga í öðrum þeirra og Karen Gísley og Haffi í öðrum þeirra:D en já svo þegar við vorum komin þá bara kom maður sér fyrir í herberginu og slakaði aðeins á;) og svo leið nú ekki langt þangað til að maður opnaði sér bjór og það var eitthvað um 5 leitið hehe helvíti gott;) en já svo um 8 leitið þá fórum við öll í heitapottinn og sötruðum okkur aðeins meiri bjór og svo alltí einu kemur Kristó og segir mér að færa bílinn:S ég bara já oki fer að koma en þá hélt maður bara áfram að drekka hehehe þangað til að hann kemur í annaðð sinn og segir "Haukur viltu drullast til að færa andskotans bílinn" hehehe hann var þá fyrir einhverjum sleðum sem var verið að stilla upp þarna fyrir utan af því að það var kynning á keppendunum hehehe en maður lét Kristó bara fá lykilinn til að færa bílinn enda kallinn komin í vín hehehe:D En já svo fer maður bara í sturtu og gerir sig kláran fyrir að drekka enþá meiri bjór og þá fórum við í smá "Road Trip" hehe alla leið útí reykjahlíð en við fórum bara á einum bíl þannig að það var mitt verk að fara í skottið enda vanur maður;) en við fórum á hótel Reynihlíð að borða og það var 2 um að velja annað hvort hamborgara eða samloku. en ég Begga og Haffi fengum okkur samloku en hin 3 fengu sér hamborgara en já alltí lagi með það en svo koma samlokurnar og neinei þá er kál á samlokurnar hehe þetta höfðum við aldrei séð áður hehe og við hlógum bara að þessu en borðuðum þetta en samloka er ágæt með káli eina sem vantaði var sósa og þetta yrði fínasti "samborgari" hahah en já svo spyr ég hvort hún væri með gos og hún bara já kók það kostar 250 kr. ég bara já oki hélt að það yrði hálfslíters flaska en nei hún kom með litla kók í gleri fyrir 250 kr.:S en þar sem ég er svo ríkur þá fékk ég mér kókið;9 hhehe enjá svo fórum við aftur útí mývatnssveit og þá ákváðum ég kristó björn ómar og karen að kíkja á hótelið beint á móti og það var reyndar geðveikt þar hehe þá var einhver leikur sem að allir eiga að láta frá sér eitthvað sem að skiptir þau máli ofaní svona hatt og svo er dregið 2 og þá eiga þær manneskjur að koma upp og svo er lesið hvað þau þurfa að gera hehehe en ef ég myndi koma með dæmi þá þurfti Kristó að troða nefinu á sér í rassinn á Röggu kærustu Ásgeirs í 20 sekúndur hehehehe reyndar geðveikt hehe og svo náttúrulega var Karen fengin til að lesa upp það sem fólkið átti að gera og hún stóð sig með prýði;) hehehe en já svo fór maður bara á sitt hótel lagðist undir sæng og horfði á sjónvarpið og sötraði ennþá meiri bjór þangað til að klukkan var orðin 5 um nóttina heheh þá fór maður að sofa:D

Laugardagur

já laugardagurinn var nú ekki verri en sá fyrsti hehehe en það var þannig að við vöknuðum 9 fórum og klæddum okkur útí bíl fórum og horfðum á ísspyrnuna og svo bara á hótelið aftur og vorum þar bara í einhvern smá tíma og lögðum fljótt af stað á Kröflu að horfa á Snocrossið ;) en já þangað förum við og þetta var geðveikt nema maður horfði voða lítið á keppnina maður var að prufa sleðan hans orra og svo var maður á einhverjum lynx sleða sem lexi var með í láni:D og svo var maður orðin svo þreyttur að maður bað Gísley og Karen að sækja sig þar sem þær voru rúntandi um Kröflu á Land Rover heheheh og þær sóttu mig og svo ætluðum við að fara í lónið og viðþurftum að bíða eftir orra beggu og haffa en svo 20 mnútum seinna hættu þau við að koma með þannig að við lögðum af stað uppá hótel að ná í sundföt og svo þegar við vorum að keyra þessa leið urðum við öll eitthvað svo þreytt að við ákváðum að fá okkur núðlur og leggja okkur aðeins:D og við förum á hótelið og ég reyndar fékk mér núðlur man ekki hvort þær fengu sér en svo fór ég í herbergið mitt og kveikti á sjónvarpinu og opnaði mér bjór og drakk hann og svo lagði ég mig og sofnaði en svo þegar ég vakna byrjaði ég að drekka strax aftur og hlusta á bjögga halldórs með Hilmi og haffa hehe og alltí einu þá þurfti Karen og Gísley að fara í bæinn útaf einhverju máli:S en já svo fór maður bara að drekka og svona svo skellti maður sér í sturtu og klæddi sig og gerði sig kláran og svo fór ég og orri að drekka aðeins meira heheh mikið drukkið þessa helgi og svo skelltum við okkur á ballið ég begga og orri en haffi og stebbi komu seinna um kvöldið;9 og svo alltí einu um nóttina þá kemur kristó og bara Haukur komdu Stebbi í WPSA atlar að tala við þig og ég bara ok:S og þá vantaði þeim trommuleikara og ég náttúrulega hafði aldrei áður spilað í alvöru hljóðkerfi eða með svona mikið af áhorfendum og það á balli:haha: en ég sló til og sagði jább og spurði hvaða lög ætlum við að taka og þá svarar hann við erum ekki alveg vissir ég bara oki:S en hvenar förum við á sviðið og hann svarar veit ekki alveg en þegar ég er komin uppá sviðið og kalla á rokksveitina þá kemuru og sest bara við settið og ég náttúrulega bara já okey. og svo líða 20 mínútur eða eitthvað og þá erum við kallaðir upp og ég náttúrulega bara beint uppá svið fór úr jakkanum og úr krókódílaskónum mínum og settist og svo byrjuðum við bara að spila heheh það voru áhorfendur sem fengu að ráða lögin en við spiluðum lag með Rolling Stones,Elvis Presley,Britney spears,og svo sólstrandargæjann og einhver 2 í viðbót man ekki alveg þau:S en þetta var besta tilfinning sem ég hef upplifað á ævinni hún var Yndisleg:D en já svo fór maður bara að djamma aftur og svo keyrði Kristó mig heim og þá fer ég í herbergið á móti sem hilmir er í sé ég hilmi á gólfinu á dýnu haffi situr í stólnum og svo stebbi súkka stendur í hurðunum og 2 stelpur í rúminu alsberar hehe nefni enginn nöfn þeir sem voru þarna vita hverjar þær eru og svo voru 2 manneskjur sem voru að gera eitthvað dónó á klósettinu hjá mér og haffa hahaha alltíeinu þá heyrum við þessar þvílíku stunur hehehe og við gátum ekki annað en skellihlegið hehehehe en já þau kláruðu sig af og komu fram og við gerðu í því að stríða þeim hahahahaha þetta var reyndar snilldar helgi ein skemmtilegasta helgi lífs míns heheh ;) en já þegar við vorum búinn að stríða þeim fór maður bara að horfa á sjónvarpið og síðan að sofa um 6 leitið og vaknað um morguninn og keyrt heim;)

En þakka fyrir mig og muna að kvitta:D

Adios Amigos


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 19:02:10 / haukzi

Helgin;)

Jæja þá er komið að blogginu;) heyrðu helgin hún var góð sko þetta byrjaði þannig að fimmtudagsnóttina þá var maður uppí bili hjá honum orra að undirbúa sleðan hans fyrir snocrossið á laugardaginn sem að heppnaðist vorum  til 4 um nóttina hehehe;) en já svo föstudaginn þá byrjuðum við snemma að gera allt klart svo fór maður bara að vinna klukkan 2 til 6 og svo fer maður heim að borða beint uppí bil og þá förum við að setja sleðana uppá kerru;) svo var bara farið með sleðana heim á plan tilbúnir fyrir laugardaginn;) og svo fór maður eitthvað aðeins á rúntinn og maður tók eddu með þangað til að hun vildi fara heim klukkan 3 og þá kíkti maður á rúntinn með hjalta vini mínum ;) hann er ný búinn að kaupa sér Ford-f350 jeppa algjör eðalgræja sko;) og vorum á rúntinum til hálf 6 eða eitthvað ;) svo morguninn eftir þá fór maðurinn bara að vinna 11 til 2 og svo skellti maðurinn sér uppá vaðlaheiði til að ná snocrossinu;) þurfti fyrst að ná í Eyþór og Eddu og svo lögðum við í hann og strax í annari beygju í þarna six sax beygjunum þá komumst við ekki upp á sunnyinum og við vorum búinn að vera heillengi að reyna að komast þarna upp þangað til að mér dettur í hug að prufa að bakka:$ og viti menn að það tókst:O við komumst upp þannig að ég ákvað að bakka bara alla leiðina upp hheheh eiginlega hálft fjallið og það brá öllum þegar það sá Nissan Sunny koma á móti sér afturábak hehehe frekar gott og svo festi maður sig tvisvar það var fínt fyrst þá drógu einhverjir strákar okkur upp á gömlum bronco og svo næst þegar við festum okkur þá náði Eyþór að íta okkur tilbaka;) núna heitir hann Eyþór mister strongmen;9 og svo kláruðum við að bakka upp en þegar upp var komið var mótið búið hehehehe þannig að við heilsuðum upp á nokkra og lögðum afstað niður aftur en fórum þó áfram;) hehe en þegar í bæinn var komið var keyrt eyþór og eddu heim og síðan skellti ég sjálfum mér heim og fór í sturtu og svona og fór síðan í mat til ömmu;9 þar sem frænka mín var komin í heimsókn:D og þar var borðað mikið og góðan mar mhmmm:D og síðan þá fékk ég að rúnta á bílnum hennar frænku minnar reyndar eini bíllinn Lincil Aviator;) það var geðveikt hehe en síðan var bara farið heim seinna um nóttina og horft á sjónvarpið og haft það gott en ég atla að segja þetta gott í bili og góða nótt

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 16:44:38 / haukzi

2.umferð WPSA

Jæja góðir hálsar þá er það orðið öruggt að mótið okkar verður haldið á toppi Vaðlaheiðar ( bara taka gamla Vaðlaheiðaveginn ;)       laugardaginn 24 febrúar. Allir sem eru menn með mönnum munu mæta og ýmist keppa eða berja keppnina augum. Æfingar hefjast væntanlega kl: 11:30 og svo hefst keppnin kl :14:00 stundvíslega og verður drifinn áfram af hörku og endar með verðlaunaafhendingu á skaflinum c.a 2 tímum síðar. KKA hvetur alla áhugamenn að koma og fylgjast með baráttunni, síðasta keppni var gríðarlega skemmtileg og þessi verður enn betri. 1000 kell inn og málið er dautt.

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 19:38:54 / haukzi

Eurovision 2007

FRIÐRIK ÓMAR VERÐUR MEÐ Í EUROVISION Í ÁR OG AUÐVITAРMUNU ALLIR HALDA ME'Ð HOMUM.....HANN SYNGUR LAGIÐ "ÞÚ ERT SEM ELDUR" EFTIR GRÉTAR ÖRVARS OG KRISTJÁN GRÉTARS. 
HANN VERÐUR Í SJÓNVARPINU 27. JAN EN FYRSTA KVÖLDIÐ ER 20.JANÚAR ÞANNIG AÐ EUROVISION STEMMINGIN ER BYRJUÐ;) EN SVO ER BARA AÐ KJÓSA FRIKKA FRÆNDA:D

 

http://www.ruv.is/heim/vefir/eurovision/


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5